Nýtt tæki til að leita að fíkniefnum ??

Gegnumlýsingartækið mun flýta fyrir allri vinnu tollvarða við almennt eftirlit þar sem ekki þarf að tæma gáma við leit. Þegar ég flutti heim frá útlöndum fyrir 10 árum með búslóðina í einum litlum gámi þá var ekki árennilegt að leita í honum. Það hefði tekið embættið heilan dag að tæma hann og fylla aftur. Nú geta þeir skannað gáma á tíu mínútum og hefðu þá getað séð hvort ég hafi þá verið með löglegt magn af heimilistækjum í gámnum mínum. Auka sjónvarpstæki, ískápur þvottavél fyrir vini og vandamenn var yfirleitt að finna í búslóðargámum og ekki má gleyma mismunandi magni af léttvínsflöskum. Nú man ég ekki vel hversu löghlýðinn ég var en mig minnir að fjöldi heimilistækja hafi verið réttur enn konan sá um fjölda léttvínsflaska. 

En nú er 200 milljón króna tækið komið til landsins í miðri kreppu hugsanlega hefðum við háskólamenn getað smíðað það fyrir 100 milljónir sem rannsóknatæki en þá hefði það ekki verið eins öruggt í rekstri.  Hins vegar hefðum við aldrei lofað neinum að slík tæki geti fundið fíkniefni, til þess er aðferðin einfaldlega ekki megnug. Ástæðan er einföld, víxlverkun gamma eða röntgen geisla við fíkniefnefni er sú sama og við eins saklausan hlut eins og barnafötin í kommóðu barnanna.  Þegar réttlæta á kaup á dýrum tækjum þá þarf að rökstyðja slíkt með góðum málefnum og fíkniefnaleit er eitt þeirra. Ég get hins vegar lofað að heimilistækja- og léttvínsmygl í búslóðargámum er ekki lengur mögulegt fyrir komandi kynslóðir nýbúa, námsmanna og annarra íslendinga.

 


mbl.is Nýtt tæki til að leita að fíkniefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er reyndar ekki gammatæki.

Arngrímur (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 15:38

2 identicon

Þá er þetta röntgentæki, munur á nafngiftinni felst í því hvort ljóseindin er sköpuð í ástandstilfærslum í atóminu (röntengeisli) eða kjarna atómsins (gamma geisli). Þessa nafnaskilgreiningar breyta hinsvegar ekki því að tækið getur ekki greint á milli fíkniefna og barnafata

Sveinn Ólafsson (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 19:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sveinn Ólafsson

Höfundur

Sveinn Ólafsson
Sveinn Ólafsson
Eðlisfræðingur og Verkfræðingur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband